A A A

Sporaleit

Flokkur A, B og C

1. Almennar upplýsingar

Reglur þjálfunar skiptast í þrjá flokka.

  • Flokkur C: Byrjendur
  • Flokkur B: Framhald / vinnulisti
  • Flokkur A: Útkallshundar
Viðurkennt gengi í A flokki skráist á útkallslista Leitarhunda SL

Viðurkennt gengi í B flokki skráist á vinnulista Leitarhunda SL, hafi viðkomandi starfað með björgunarsveit sl. 1 ár a.m.k. og hundurinn fullra 18 mánaða.

(Gengi er maður og hundur)


2. Almennar reglur.

Almennar reglur sem gilda fyrir allar æfingar.

Ef hundi er refsað fyrir, á meðan eða eftir æfingu varðar það brottvísun frá prófi. Ástæða brottvísunar skráist á eyðublað hjá dómara. Hundurinn skal vera undir stjórn að og frá æfingarsvæði.

Mikilvægt er að kenna hundi að vera í hundaholu (snjóholu) eða í búri án þvingunar og með heimavinnu á öðrum vettvangi áður en komið er á námskeið. Þeir hundar sem ekki kunna að vera í hundaholu þegar þeir mæta á námskeið, þurfa ekki að vera í holu það námskeið. Geymsla á hundi milli æfinga á námskeiði er á ábyrgð eiganda og má ekki koma niður á framkvæmd námskeiðs.

Varðandi hlýðnipróf.

Allir flokkar taka hlýðnipróf. Hundur í A eða B flokki verður að standast hlýðnipróf.

Hundur á að byrja hverja æfingu sitjandi við vinstra hné eigandans nema annað sé tekið fram við upphaf æfingar. Leyfilegt er að hafa hundinn við hægra hné óski hundastjórnandi þess.

Hlýðnipróf skulu tekin á hverju svæði fyrir sig, fyrir aðalnámskeið og skulu hópstjórar sjá um framkvæmd þess.

Standist gengið hlýðnipróf gildir það fram að endurnýjun.

3. Innritun - úttekt - próf.

Gengið verður að standast B flokk áður en það innritast í A flokk.

Gengi sem leiðbeinandi innritar í úttekt / próf í flokk B eða A verður að hafa verið á aðalnámskeiði með hundinn.

Viðurkenning veitist aðeins þeim sem staðist hafa rötun og skyndihjálp á síðustu tveimur árum skv. gildandi kröfum og séu fullgildir félagar í björgunarsveit, með öll þau námskeið sem þar er krafist.

Krafa er að hundamaðurinn sé í góðri líkamlegri þjálfun svo viðurkenning sé veitt.

Leiðbeinandi (sumar / vetur) getur innritað eigin hund í próf.


4. Viðurkenningar - námskeið.

Úttekt / próf í C flokki er eingöngu hægt að taka á aðalnámskeiði.

Úttekt / próf í B flokki er eingöngu hægt að taka á aðalnámskeiði.
Gengi sem stenst B flokk fer á framhald / útkallslista í eitt ár (sjá 1.1)

Úttekt / próf í A flokki er eingöngu hægt að taka á aðalnámskeiði.
Gengi sem stenst A flokk skráist á útkallslista í tvö ár.

Viðurkennt A gengi má athuga hvenær sem er til að sjá hvort það standist kröfur. Ef svo er ekki, sér fræðslunefnd um úttekt / próf með tveimur dómurum eins fljótt og auðið er. Standist gengið ekki þarf það að sækja næsta aðalnámskeið.

Hundurinn þarf að vera tveggja ára til viðurkenningar í fyrsta sinn í A flokk. Viðurkenningin gildir í tvö ár. Endurmat er annað hvert ár til tíu ára aldurs. Síðan á hverju ári gegn vottorði dýralæknis.

Hundastjórnandi sem hefur staðist A í einhverri grein má reyna beint við B kröfur í sömu greinum. Hundurinn sé fullra 18 mánaða.

Heimilt er að mæta á námskeið með unga hunda ef pláss og aðstæður leyfa.

5. Endurmat:

Fyrsta endurmat fer fram í upphafi aðalnámskeiðs. Þeir sem standast, halda áfram út vikuna, þar sem aðaláhersla er lögð á framkvæmd leitar.

Endurmat í annað sinn og síðar er leyfilegt að taka á aðalnámskeiði sem úttekt / próf.

Gengi sem er í endurmati í annað sinn eða síðar og stenst ekki á fyrstu úttekt / prófi tekur þátt í námskeiðinu til enda, ef innritun frá leiðbeinanda liggur fyrir í lokin, er farið í úttekt / próf.

Gengi sem er í endurmati í annað sinn eða síðar og stenst úttekt / próf í byrjun námskeiðs er leyfilegt að koma með annan hund og klára námskeiðið með þann hund.


6. Dómur: 
  • A úttekt / próf og endurmat: Einn dómari ásamt leiðbeinanda.
  • B úttekt / próf: Einn dómari ásamt leiðbeinanda
  • C úttekt / próf: Dæmist af leiðbeinanda.
Hver æfing og liður æfingar dæmist "staðist" eða "ekki staðist".

Til að standast æfinguna þarf "staðist" í öllum liðum æfingar.

Prófæfingar fyrir leitarhunda / hlýðni:

ÆFING 1: Skapgerðarpróf ( staðist / ekki staðist).
Prófa skal viðbrögð hundsins gagnvart ókunnugum. Sá sem prófar hundinn sýni eðlilega hegðun. Hundurinn á að vera í taumi. Hundur sem greinilega sýnir hræðslu og / eða reiði hlýtur ekki viðurkenningu. Þetta próf á að taka sem fyrstu æfingu. Krafan er staðist svo heimilt sé að halda áfram með æfingarnar. Hundurinn verður að standast skapgerðarpróf til að geta haldið áfram.

ÆFING 2: Laus við hæl:
Hundurinn sé í byrjunarstöðu og laus. Hundastjórnandi láti vita þegar hann er tilbúinn að byrja. Dómari gefur leyfi til að byrja. Skipunarorð frá hundastjórnanda er aðeins leyft í byrjun æfingar. Í æfingunni á hundurinn að fylgja hundastjórnandanum með óskiptri atygli. Gengið er prófað í öllum snúningum og á mismunandi hraða.

ÆFING 3: Stýring:
Hundurinn sé í byrjunarstöðu og laus. Að beiðni dómara á hundastjórnandi að senda hundinn fram, til hægri og vinstri u.þ.b. 15-25 metra í hvora átt. Hundurinn skal stoppa á hverjum stað, standandi, sitjandi eða liggjandi. Án þess að snúa aftur til hundastjórnanda á hundurinn að fara að næsta stað samkvæmt skipun frá hundastjórnanda. Hundurinn á að geta farið í þessar 3 áttir samkvæmt skipun frá hundastjórnanda a.m.k. 5 sinnum. Dómara er heimilt að biðja hundastjórnanda að kalla hundinn til sín og hefja æfinguna að nýju.

Dómsreglur: á við um æfingar 1,2 og 3

Auka skipanir og merki þýða frádrátt. Öll frávik frá framanskráðu þýða frádrátt.

ÆFING 4: Innkall á frjálsum hundi:
Hundurinn sé í byrjunarstöðu. Að fengnu leyfi frá dómara er hundinum “gefið frí”( sleppt lausum). Dómari segir til þegar kalla á hundinn inn. Við innkall verður fjarlægðin að vera a.m.k 20 metrar. Ef hundurinn fer ekki 20 metra frá stjórnanda, getur hann gengið frá hundinum eða dómarinn kallað hundinn til sín. Í innkalli á hundurinn að bregðast fljótt og vel við og fara beint til stjórnanda án tafar og enda æfinguna í byrjunarstöðu.

Dómsreglur:
Hundur sem skilur ekki skipun eða merki um að hann sé frjáls fær frádrátt. Kalli dómarinn á hundinn verður hann að gæta þess að áhrifin séu ekki það sterk að það hindri hundinn í að gegna innkalli eiganda fyrr en hann er búinn að athuga þann sem kallar. Í slíku tilfelli á merki um innkall að koma þegar hundurinn hefur rannsakað málið. Öll frávik frá framanskráðu þýða frádrátt.

ÆFING 5: Liggja saman:
Tími a.m.k. 10 mín. Hundastjórnandi í hvarfi.
Að beiðni dómara raða gengin sér upp í beina línu með u.þ.b. tveggja metra millibili. Krafan er að minnst þrír hundar taki þátt í æfingunni. Að beiðni dómara eru hundarnir látnir leggjast. Þegar dómarinn lætur vita, ganga hundastjórnendurnir í beinni línu burt og í hvarf. Tímatakan hefst þegar hundastjórnendur eru komnir í hvarf. Þegar tíminn er liðinn ganga hundastjórnendur í beinni línu aftur fyrir hundana og standa þremur skrefum fyrir aftan þá. Með leyfi dómara ganga stjórnendur til hundanna og bíða eftir skipun frá dómara um að hundurinn megi setjast upp, þá er æfingunni lokið.

Dómsreglur:
Hundurinn verður að liggja í minnst 5 mín. til að standast. Hreyfi hundurinn sig eftir 5 mín. getur hann staðist ef hann er kyrr á staðnum. Leyfilegt er að skríða lengd sína. Það og annar órói þýða frádratt. Fleiri frávik í viðbót þýða fall.


Sporaleit

A-flokkur.

  • Lengd slóðar: u.þ.b 1.800 metrar
  • Aldur: u.þ.b 3-4 klst.
  • Liggjandi í slóð: Fimm hlutir. Við enda slóðar, staðgengill og /eða stór hlutur (poki/jakki).
  • Leitartími: 2 tímar alls, þar af 15 mín. til leitar að slóðarbyrjun.
Slóðin á að vera vinkluð með fimm hlutum. Við enda slóðar skal vera staðgengill og / eða stór hlutur. Þvert á slóðina geta legið slóðir gengnar af öðrum en þeim sem gekk aðalslóðina. Upphaf slóðar er á u.þ.b 75 metra langri línu og takmarkast af samhliða línu u.þ.b 50 metrum innar á svæðinu, þ.e reitur sem er 50 x 75 metrar að stærð. Dæmt er í leit að slóð. Hundurinn á að vera fær um að lykta af hlut sem staðgengill skilur eftir sig og rekja slóðina eftir því. Þegar hundastjórnandi segist hafa fundið slóð staðfesta dómarar hvort svo sé. Hundastjórnandi verður sjálfur að ákveða frá hvaða hlið hann hefur leit. Tímavörður eða dómari fylgir hundastjórnanda og skráir hluti og tíma. Hindranir í slóðinni skulu vera að minnsta kosti tvær, lækur, vegur eða þess háttar. Gengið á að geta unnið þrátt fyrir truflun. Hundastjórnandi á að vera hæfur til að stjórna á vettvangi.

Dómsreglur slóð.
Hundastjórnandi skýrir frá þegar hundurinn er á slóð og heldur áfram þegar dómarinn hefur staðfest að það sé rétt. Ef hundurinn hefur ekki fundið slóð innan tímamarka eða hundastjórnandi skýrir frá slóð oftar en einu sinni eða hundurinn gengur yfir slóð þrisvar, þýðir það "ekki staðist". Einnig ef gengið fer yfir samsíða línuna 50 metrum innar á svæðinu án þess að hafa fundið slóðarbyrjun.Stjórnun með misnotkun á sporalínu þýðir frádrátt. Kröfur til viðurkenningar eru að hundurinn finni minnst tvo hluti ásamt staðgengli og / eða hlut við enda slóðar, innan tímamarka.

B-flokkur
  • Lengd slóðar: u.þ.b 1.000 metrar
  • Aldur: u.þ.b 2 klukkustundir
  • Liggjandi í slóð: 4 hlutir. Við enda slóðar, staðgengill og /eða stór
  • hlutur (poki/jakki).
  • Leitartími: 1 klukkustund, þar af 15 mín. í leit að slóðarbyrjun.
Slóðin á að vera vinkluð með fjórum hlutum. Við enda slóðar skal vera staðgengill og / eða stór hlutur. Þvert á slóðina á að liggja slóð gengin af öðrum en þeim sem gekk aðalslóðina. Upphaf slóðar er á u.þ.b 75 metra langri línu og takmarkast af samhliða línu u.þ.b 50 metrum innar á svæðinu, þ.e. reitur sem er 50 x 75 metrar að stærð. Hundurinn á að vera fær um að lykta af hlut sem staðgengill skilur eftir sig og rekja slóðina eftir því. Dæmt er í leit að slóð. Þegar hundastjórnandi segist hafa fundið slóð staðfesta dómarar hvort að svo sé. Hundastjórnandi ákveður frá hvaða hlið hann hefur leit. Tímavörður eða dómari fylgir hundastjórnanda og skráir hluti og tíma. Gengið á að geta unnið þrátt fyrir truflun. Hundastjórnandi á að vera hæfur til að stjórna á vettvangi.

Dómsreglur slóð.
Hundastjórnandi skýrir frá þegar hundurinn er á slóð og heldur áfram þegar dómarinn hefur staðfest að það sé rétt. Ef hundurinn hefur ekki fundið slóð innan tímamarka eða hundastjórnandi skýrir frá slóð oftar en einu sinni eða hundurinn gengur yfir slóð þrisvar, þýðir það "ekki staðist". Einnig ef gengið fer yfir samsíða línuna 50 metrum innar á svæðinu án þess að hafa fundið slóðarbyrjun. Stjórnun með misnotkun á sporalínu þýðir frádrátt. Kröfur til viðurkenningar eru að hundurinn finni minnst tvo hluti ásamt staðgengli og / eða hlut við enda slóðar, innan tímamarka.

C-flokkur.
  • Lengd: u.þ.b 500 metrar
  • Aldur: u.þ.b 1 klst.
  • Liggjandi í slóð: Þrír hlutir. Staðgengill við enda slóðar.
  • Leitartími: 20 mín. þar af 10 mín. í leit að slóðarbyrjun.
Slóðin á að vera vinkluð. Upphaf slóðar er á línu sem er u.þ.b. 40 metrar á lengd og takmarkast af samsíða línu 20 metrum innar á svæðinu, þ.e. reitur sem er 20 x 40 metrar að stærð.

Dómsreglur slóð.
Hundastjórnandi skýrir frá þegar hundurinn er á slóð og heldur áfram þegar dómarinn hefur staðfest að það sé rétt. Ef hundurinn hefur ekki fundið slóð innan tímamarka eða hundastjórnandi skýrir frá slóð oftar en einu sinni eða hundurinn gengur yfir slóð þrisvar, þýðir það "ekki staðist". Einnig ef gengið fer yfir samsíða línuna 20 metrum innar á svæðinu án þess að hafa fundið slóðarbyrjun. Stjórnun með misnotkun á sporalínu þýðir frádrátt. Kröfur til viðurkenningar eru að staðgengill finnist ásamt einum hlut. Leitartími sé innan tímamarka bæði slóðarbyrjun og slóðin í heild

Útkall 28.ágúst 2010

Leit að manni í Svínadal.
Hundateymi frá BHSÍ og Leitarhundum kölluð til leitar.
Maðurinn fannst heill á húfi.

fleiri útköll
Æfingadagbók

Æfingadagókin er ætluð til skráningar á leitaræfingum og hlýðniæfingum.

Hugmyndin er fengin frá svokölluðum log-bókum / verkskráningarbókum sem tíðkast víða að nota þegar skráning á að vera ítarleg ...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com