Flokkur A, B og C
1. Almennar upplýsingar
Reglur þjálfunar skiptast í þrjá flokka: - Flokkur C: Byrjendur
- Flokkur B: Framhald / vinnulisti
- Flokkur A: Útkallshundar
Viðurkennt gengi í A flokki skráist á útkallslista Leitarhunda SL
Viðurkennt gengi í B flokki skráist á vinnulista Leitarhunda SL, hafi viðkomandi starfað með björgunarsveit sl. 1 ár a.m.k. og hundurinn fullra 18 mánaða.
(Gengi er maður og hundur)
Truflun og einbeitning: Allir hundar skulu prófaðir við sem raunverulegastar aðstæður. Maður og hundur skulu vera færir um að vinna í svæði þar sem aðrir leitarflokkar eru að störfum, hvort sem um er að ræða leitarmenn eina sér eða með hverskonar tækjum og útbúnaði, án þess að það trufli einbeitingu þeirra. Hundarnir skulu vera þjálfaðir í lyktgreiningu, en með því er átt við að hundur geti aðgreint lykt af “manni” frá lykt af fötum, mat o.s.fr.
2. Almennar reglur. Almennar reglur sem gilda fyrir allar æfingar:
Ef hundi er refsað fyrir, á meðan eða eftir æfingu varðar það brottvísun frá prófi. Ástæða brottvísunar skráist á eyðublað hjá dómara. Hundurinn skal vera undir stjórn að og frá æfingarsvæði.
Mikilvægt er að kenna hundi að vera í hundaholu (snjóholu) eða í búri án þvingunar og með heimavinnu á öðrum vettvangi áður en komið er á námskeið. Þeir hundar sem ekki kunna að vera í hundaholu þegar þeir mæta á námskeið, þurfa ekki að vera í holu það námskeið. Geymsla á hundi milli æfinga á námskeiði er á ábyrgð eiganda og má ekki koma niður á framkvæmd námskeiðs.
Varðandi hlýðnipróf. Allir flokkar taka hlýðnipróf. Hundur í A eða B flokki verður að standast hlýðnipróf.
Hundur á að byrja hverja æfingu sitjandi við vinstra hné eigandans nema annað sé tekið fram við upphaf æfingar. Leyfilegt er að hafa hundinn við hægra hné óski hundastjórnandi þess.
Hlýðnipróf skulu tekin á hverju svæði fyrir sig, fyrir aðalnámskeið og skulu hópstjórar sjá um framkvæmd þess.
Standist gengið hlýðnipróf gildir það fram að endurnýjun.
3. Innritun - úttekt - próf.
Gengið verður að standast B flokk áður en það innritast í A flokk.
Gengi sem leiðbeinandi innritar í úttekt / próf í flokk B eða A verður að hafa verið á aðalnámskeiði með hundinn.
Viðurkenning veitist aðeins þeim sem staðist hafa rötun og skyndihjálp á síðustu tveimur árum skv. gildandi kröfum og séu fullgildir félagar í björgunarsveit, með öll þau námskeið sem þar er krafist.
Krafa er að hundamaðurinn sé í góðri líkamlegri þjálfun svo viðurkenning sé veitt.
Leiðbeinandi (sumar / vetur) getur innritað eigin hund í próf.
4. Viðurkenningar - námskeið. Úttekt / próf í C flokki er eingöngu hægt að taka á aðalnámskeiði.
Úttekt / próf í B flokki er eingöngu hægt að taka á aðalnámskeiði.
Gengi sem stenst B flokk fer á framhald / útkallslista í eitt ár (sjá 1.1) Úttekt / próf í A flokki er eingöngu hægt að taka á aðalnámskeiði.
Gengi sem stenst A flokk skráist á útkallslista í tvö ár. Viðurkennt A gengi má athuga hvenær sem er til að sjá hvort það standist kröfur. Ef svo er ekki, sér fræðslunefnd um úttekt / próf með tveimur dómurum eins fljótt og auðið er. Standist gengið ekki þarf það að sækja næsta aðalnámskeið.
Hundurinn þarf að vera tveggja ára til viðurkenningar í fyrsta sinn í A flokk. Viðurkenningin gildir í tvö ár. Endurmat er annað hvert ár til tíu ára aldurs. Síðan á hverju ári gegn vottorði dýralæknis. Hundastjórnandi sem hefur staðist A í einhverri grein má reyna beint við B kröfur í sömu greinum. Hundurinn sé fullra 18 mánaða.
Heimilt er að mæta á námskeið með unga hunda ef pláss og aðstæður leyfa.
5. Endurmat: Fyrsta endurmat fer fram í upphafi aðalnámskeiðs. Þeir sem standast, halda áfram út vikuna, þar sem aðaláhersla er lögð á framkvæmd leitar.
Endurmat í annað sinn og síðar er leyfilegt að taka á aðalnámskeiði sem úttekt / próf.
Gengi sem er í endurmati í annað sinn eða síðar og stenst ekki á fyrstu úttekt / prófi tekur þátt í námskeiðinu til enda, ef innritun frá leiðbeinanda liggur fyrir í lokin, er farið í úttekt / próf.
Gengi sem er í endurmati í annað sinn eða síðar og stenst úttekt / próf í byrjun námskeiðs er leyfilegt að koma með annan hund og klára námskeiðið með þann hund.
6. Dómur: - A úttekt / próf og endurmat: Einn dómari ásamt leiðbeinanda.
- B úttekt / próf: Einn dómari ásamt leiðbeinanda
- C úttekt / próf: Dæmist af leiðbeinanda.
Hver æfing og liður æfingar dæmist "staðist" eða "ekki staðist".
Til að standast æfinguna þarf "staðist" í öllum liðum æfingar.
Prófæfingar fyrir leitarhunda / hlýðni: ÆFING 1: Skapgerðarpróf ( staðist / ekki staðist).
Prófa skal viðbrögð hundsins gagnvart ókunnugum. Sá sem prófar hundinn sýni eðlilega hegðun. Hundurinn á að vera í taumi. Hundur sem greinilega sýnir hræðslu og / eða reiði hlýtur ekki viðurkenningu. Þetta próf á að taka sem fyrstu æfingu. Krafan er staðist svo heimilt sé að halda áfram með æfingarnar. Hundurinn verður að standast skapgerðarpróf til að geta haldið áfram.
ÆFING 2: Laus við hæl: Hundurinn sé í byrjunarstöðu og laus. Hundastjórnandi láti vita þegar hann er tilbúinn að byrja. Dómari gefur leyfi til að byrja. Skipunarorð frá hundastjórnanda er aðeins leyft í byrjun æfingar. Í æfingunni á hundurinn að fylgja hundastjórnandanum með óskiptri atygli. Gengið er prófað í öllum snúningum og á mismunandi hraða.
ÆFING 3: Stýring: Hundurinn sé í byrjunarstöðu og laus. Að beiðni dómara á hundastjórnandi að senda hundinn fram, til hægri og vinstri u.þ.b. 15-25 metra í hvora átt. Hundurinn skal stoppa á hverjum stað, standandi, sitjandi eða liggjandi. Án þess að snúa aftur til hundastjórnanda á hundurinn að fara að næsta stað samkvæmt skipun frá hundastjórnanda. Hundurinn á að geta farið í þessar 3 áttir samkvæmt skipun frá hundastjórnanda a.m.k. 5 sinnum. Dómara er heimilt að biðja hundastjórnanda að kalla hundinn til sín og hefja æfinguna að nýju.
Dómsreglur: á við um æfingar 1,2 og 3 Auka skipanir og merki þýða frádrátt. Öll frávik frá framanskráðu þýða frádrátt. ÆFING 4: Innkall á frjálsum hundi: Hundurinn sé í byrjunarstöðu. Að fengnu leyfi frá dómara er hundinum “gefið frí”( sleppt lausum). Dómari segir til þegar kalla á hundinn inn. Við innkall verður fjarlægðin að vera a.m.k 20 metrar. Ef hundurinn fer ekki 20 metra frá stjórnanda, getur hann gengið frá hundinum eða dómarinn kallað hundinn til sín. Í innkalli á hundurinn að bregðast fljótt og vel við og fara beint til stjórnanda án tafar og enda æfinguna í byrjunarstöðu.
Dómsreglur: Hundur sem skilur ekki skipun eða merki um að hann sé frjáls fær frádrátt. Kalli dómarinn á hundinn verður hann að gæta þess að áhrifin séu ekki það sterk að það hindri hundinn í að gegna innkalli eiganda fyrr en hann er búinn að athuga þann sem kallar. Í slíku tilfelli á merki um innkall að koma þegar hundurinn hefur rannsakað málið. Öll frávik frá framanskráðu þýða frádrátt.
ÆFING 5: Liggja saman: Tími a.m.k. 10 mín. Hundastjórnandi í hvarfi. Að beiðni dómara raða gengin sér upp í beina línu með u.þ.b. tveggja metra millibili. Krafan er að minnst þrír hundar taki þátt í æfingunni. Að beiðni dómara eru hundarnir látnir leggjast. Þegar dómarinn lætur vita, ganga hundastjórnendurnir í beinni línu burt og í hvarf. Tímatakan hefst þegar hundastjórnendur eru komnir í hvarf. Þegar tíminn er liðinn ganga hundastjórnendur í beinni línu aftur fyrir hundana og standa þremur skrefum fyrir aftan þá. Með leyfi dómara ganga stjórnendur til hundanna og bíða eftir skipun frá dómara um að hundurinn megi setjast upp, þá er æfingunni lokið.
Dómsreglur:
Hundurinn verður að liggja í minnst 5 mín. til að standast. Hreyfi hundurinn sig eftir 5 mín. getur hann staðist ef hann er kyrr á staðnum. Leyfilegt er að skríða lengd sína. Það og annar órói þýða frádratt. Fleiri frávik í viðbót þýða fall.
Snjóflóðaleit
C-flokkur - Stærð svæðis: 50 x 50 metrar
- Fjöldi týndra: 2
- Dýpt: um það bil 1 metr
- Tími til leitar: 25 mínútur
Hundurinn á að skilja eða finna manneskju undir snjónum. Hundurinn verður að leita svæði sem er 50 x 50 metrar og gefa til kynna hvar manneskjan er grafin með því að gelta eða grafa. Dýpt um það bil 1 metri.
Kröfur til að fá viðurkenningu:
Hundurinn þarf að hafa staðist svæðisvinnu sem lögð er fyrir á námskeiði. Staðist hlýðninámskeið Ef hundurinn stenst það ekki, er gefinn kostur á að endurtaka prófið ári síðar. Hundar sem hafa staðist flokk C geta hvenær sem er tekið þátt í námskeiði fyrir B flokk. Hundar sem hafa staðist námskeið í C flokki eru ekki skráðir á vinnulista, og eru ekki viðurkenndir til snjóflóðaleitar. Til að öðlast strax viðurkenningu í B flokk þarf hundurinn að fá einkunnina "mjög gott" ásamt því að hafa staðist hlýðnipróf. Hundurinn þarf að vera orðinn 18 mánaða gamall. Viðkomandi hund skal prófa á B svæði ef mögulegt er. Ef svo er ekki skal prófa hann í æfingum skv.kröfum B flokks á C svæði. B-flokkur - Stærð svæðis: 100 x 100 metrar
- Fjöldi týndra: 2
- Dýpt: allt að 1,5 metri
- Tími til leitar: 25 mínútur
Kröfur til að fá viðurkenningu.
Hundurinn skal með kerfisbundinni leit finna og gefa merki um tvo týnda á svæðinu. Gengið verður að hafa staðist svæðisvinnu á námskeiðinu. Hundurinn verður að standast hlýðnipróf fyrir björgunarhunda. Stjórnandi skal vera leiðandi í leitinni og sýna að hann hafi skilning til að nýta getu hundsins og skilji viðbrögð hans. Stjórnandi verður að gera grein fyrir þekkingu sinni um framkvæmd leitarinnar. Við fund skal hundurinn gefa viðvarandi merki. Hvatningaráhrif til hundsins frá stjórnanda um að gefa merki þýðir "ekki staðist". Hundurinn sé u.þ.b 18 mánaða. Viðkomandi getur tekið A flokk ári seinna. Viðurkenning til skráningar á vinnulista veitist aðeins þeim sem staðist hafa rötun og skyndihjálp á síðustu tveimur árum skv.gildandi kröfum Björgunarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjargar og hafa starfað með björgunarsveit í 1 ár.
Merki við fund.
Grafa og/ eða gelta viðvarandi, eða sækja hundastjórnanda og fara rakleiðis á fundarstað og þá grafa og / eða gelta viðvarandi.
A-flokkur - Stærð svæðis: 150 x 150 metrar
- Fjöldi týndra: allt að fjórir
- Dýpt: minnst 2 metrar
- Tími leitar: 30 mínútur
Kröfur til að fá viðurkenningu
Hundurinn skal með kerfisbundinni leit, finna og gefa merki um alla týnda á svæðinu. Gengið leiti á óþekktu svæði, minnst einu sinni á námskeiðinu. Gengið verður að hafa staðist svæðisvinnu á námskeiðinu. Stjórnandinn skal vera leiðandi í leitinni og sýna að hann hafi skilning til að nýta getu hundsins og skilji viðbrögð hans. Stjórnandi verður að gera grein fyrir þekkingu sinni um framkvæmd leitarinnar. Gengið á að geta leitað með öðrum leitarflokkum og / eða með öðrum hundum. Truflun á ekki að hafa afgerandi áhrif á gengið. Stjórnandi á að vera hæfur til að stjórna/ skipuleggja leit á vettvangi þar sem eru fleiri hundagengi og aðrir leitarflokkar. Við fund skal hundurinn gefa viðvarandi merki. Hvatningaráhrif til hundsins frá stjórnanda, um að gefa merki þýðir "ekki staðist". Hundurinn verður að hafa staðist hlýðnipróf fyrir björgunarhunda. Hundar í A flokki eru 2 ár á útkallslista. Viðurkenning veitist aðeins þeim sem hafa staðist rötun og skyndihjálp á síðustu 2 árum skv. gildandi kröfum Björgunarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjargar og starfað með björgunarsveit í 18 mánuði.
Merki við fund.
Grafa og / eða gelta viðvarandi, eða sækja hundastjórnanda og fara rakleiðis á fundarstað og þá grafa og / eða gelta viðvarandi.