A A A

Útkall 18. júlí 2009

Um klukkan eitt í nótt voru björgunarsveitir frá Hellu, Hvolsvelli, Vík í Mýrdal og Kirkjubæjarklaustir kallaðar út til að leita að sex manna gönguhóp sem hafði ekki skilað sér í næturstað. Einnig voru Leitarhundar kallaðir út.  Til leitar fóru frá Reykjavík 2 teymi.

Hópurinn hafði ætlað sér að ganga kringum Kálfafellsheiði og koma í Fossabrekku í gærkveldi. Þegar hópurinn hafði ekki skilað sér á tilsettum tíma og ekkert til þeirra sést voru björgunarsveitir kallaðar út. Björgunarsveitamenn frá Kyndli Kirkjubæjarklaustri fundu svo hópinn um fjögurleytið í nótt. Hópurinn hafði lent í svarta þoku og villst af leið. Ekkert amaði að göngufólkinu og aðstoðuðu björgunarsveitir hópinn við að komast aftur til byggða.
Útkall 18. júní 2011

Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...

fleiri útköll
Leit með hundum

Allir hundar geta leitað með nefinu, en þeir eru þó mis hæfir til þess. Þættir eins og til að mynda skapgerðareiginleikar hundsins, skipta miklu máli um það hversu hæfur leitarhundur hann getur orðið....

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com