A A A

Útkall 1. mars 2009

Haft var samband við stjórn Leitarhunda kl. 11:15, sunnudaginn 1. mars. Beðið var um víðavangsleitarhunda til aðstoðar við leit að týndri konu í Reykjavík. Teymin voru beðin að mæta kl. 12:30 í Grafarholti. Til leitar mættu Valgeir með Kút úr björgunarsveit Hafnarfjarðar og Tómas með Árna Björgunarsveitinni Kyndli Mosó, með þeim voru aðstoðarmennirnir Teddi úr Ársæli og Gummi úr Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Kristín bættist svo við stuttu síðar og tók við leitinni með Kút. Leitað var útivistarsvæði í kringum Reynisvatn. Að þeirri leit lokinni um kl. 16 héldu Valli, Kristín, Gummi og Teddi í Kópavogi og þræddu Kársnesið frá landfyllingu við enda nessins að Sæbólsbraut, þar sem kafað hafði verið fyrr um helgina. Teymin voru komin í hús um kl. 18. Leitin bar ekki árangur.
Útkall 28.ágúst 2010

Leit að manni í Svínadal.
Hundateymi frá BHSÍ og Leitarhundum kölluð til leitar.
Maðurinn fannst heill á húfi.

fleiri útköll
Leit með hundum

Allir hundar geta leitað með nefinu, en þeir eru þó mis hæfir til þess. Þættir eins og til að mynda skapgerðareiginleikar hundsins, skipta miklu máli um það hversu hæfur leitarhundur hann getur orðið....

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com