Siðareglur Leitarhunda Slysavarnafélagsins Landsbjargar
1. Félagar í Leitarhundum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar (hér eftir Leitarhundar) skulu fylgja siðareglum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar (hér eftir S.L.) í öllu starfi einingarinnar.
Siðareglur félagsins eru leiðbeiningar um það hvernig starfsfólk og félagar bregðist við þegar siðferðileg álitamál koma upp í störfum þess. Í siðareglunum birtast þau gildi sem eiga að einkenna samskipti innan félagsins. Reglurnar ná til allra félags- og starfsmanna. Siðareglunum er ætlað að auðvelda einstaklingum að rækja störf sín vel... Þessum siðareglum er einnig ætlað að varðveita gott orðspor félagsins, ímynd og trúverðugleika.2. Félagar í Leitarhundum sýna góða hegðun í störfum undir merkjum þeirra og vanvirða á engan hátt Leitarhunda, markmið þeirra eða merki.3. Félögum er skylt að gæta þagmælsku um atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara. Þetta á einnig við um birtingu mynda af slysavettvangi.4. Félögum er óheimilt að beita aðra einelti og / eða áreiti af neinu tagi.5. Félögum ber að mæta í útkall ef óskað þess er óskað sé þess kostur. Einnig ber þeim að hlýða stjórnanda sínum í einu og öllu á meðan á aðgerð eða æfingu stendur.6. Félagar ganga vel um eignir Leitarhunda. Sérhver aðili í Leitarhundum ber ábyrgð á að allur búnaður sá ávallt í lagi og útkallshæfur. Menn skulu ávallt vera vel búnir til björgunarstarfa.7. Félagar skulu klæðast einkennisfatnaði S.L. í aðgerðum og öðru starfi sé þess nokkur kostur. Að sama skapi er ekki mælst til þess að einkennisfatnaður sé notaður utan starfsins. Stjórn Leitarhunda tekur allar ákvarðanir um merkingu á einkennisfatnaði.8. Stjórnendur tækja og bifreiða skulu sýna fyllstu aðgát og gæta þess að valda ekki slysahættu, skemmdum á verðmætum og spjöllum á landi eða gróðri á æfingum eða öðrum skipulögðum samkomum Leitarhunda.9. Ef slys verða hvort sem er á fólki eða hundum eða tæki skemmast í aðgerðum skal tilkynna það eins fljótt og auðið er til stjórnar.10. Enginn getur stofnað til skuldbindinga á hendur Leitarhunda nema með samþykki stjórnar.11. Enginn má leita fjáraflana eða styrkja fyrir Leitarhunda nema með leyfi stjórnar.12. Almennt er öll neysla áfengis í starfi Leitarhunda óheimil og skal tekið sérstaklega fram að með öllu er óheimilt að neyta áfengis og/eða ólöglegra vímuefna:- Í einkennisfatnaði S.L..- Í fatnaði merktum Leitarhundum megi það verða til þess að álit þeirra spillist út á við (T-bolir, derhúfur, pólóbolir o.fl.).- Í starfi á vegum Leitarhunda.-Þó er stjórn Leitarhunda heimilt að veita undanþágur frá áfengisbanni við sérstakar aðstæður, eins og t.d. við skipulagðar skemmtanir á vegum Leitarhunda.Samþykkt á aðalfundi Leitarhunda Slysavarnarfélagsins Landsbjargar,Neskaupstað 20. mars 2010
Siðareglur félagsins eru leiðbeiningar um það hvernig starfsfólk og félagar bregðist við þegar siðferðileg álitamál koma upp í störfum þess. Í siðareglunum birtast þau gildi sem eiga að einkenna samskipti innan félagsins. Reglurnar ná til allra félags- og starfsmanna. Siðareglunum er ætlað að auðvelda einstaklingum að rækja störf sín vel... Þessum siðareglum er einnig ætlað að varðveita gott orðspor félagsins, ímynd og trúverðugleika.
- Í einkennisfatnaði S.L..- Í fatnaði merktum Leitarhundum megi það verða til þess að álit þeirra spillist út á við (T-bolir, derhúfur, pólóbolir o.fl.).- Í starfi á vegum Leitarhunda.-Þó er stjórn Leitarhunda heimilt að veita undanþágur frá áfengisbanni við sérstakar aðstæður, eins og t.d. við skipulagðar skemmtanir á vegum Leitarhunda.Samþykkt á aðalfundi Leitarhunda Slysavarnarfélagsins Landsbjargar,Neskaupstað 20. mars 2010
Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...
Hlýðni - 2. hluti - Tengslaæfingar leiðbeiningar fyrir þá sem vilja bæta samvinnu sína og hundsins og fá hlýðnari hund fyrir vikið Grein eftir Kristínu Sigmarsdóttur leiðbeinanda Leitarhunda S.L...
Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com