Innan Leitarhunda starfar björgunarsveitafólk um allt land og er þeim skipt
í 4 hópa: Norðurland, Austurland, Vestfirði og Suður-/Vesturlandshóp.
Æft
er reglulega víðs vegar um landið og er útgefið æfingaplan hjá hverjum
hópi fram í tímann. Öllum er velkomið að koma og taka þátt í æfingum en
fullgildir félagar þurfa að vera orðnir 18 ára, vera fullgildir félagar
í björgunarsveit sem björgunarmaður og hafa starfað með Leitarhundum í
12 mánuði.
Það tekur 3 ár ef allt gengur vel að koma upp
fullgildum leitarhundi. Prófin eru 3 : C, B og loks A. Eftir það þarf
að mæta annað hvert ár í endurmat. Vegna þess hve langan tíma tekur að
þjálfa hundinn upp í A gráðu skilar það bestum árangri að koma með unga
hunda til þjálfunar. Það skiptir því miklu að byrja sem fyrst, vera
virkur og taka þátt í starfi björgunarsveitar.
Það kostar ekkert
að æfa með okkur en vissulega er nauðsynlegt að koma sér upp
grunnbúnaði björgunarmanns og sækja námskeið sem tilheyra a.m.k.
Björgunarmanni 1.
Við erum fjölskylduvæn samtök en mestan metnað og tíma setjum við í æfingar fyrir hundana.
Hvað þarf að hafa með á fyrstu æfinguna ? Vera vel klædd-/ur, koma með hundinn, tauminn hans og uppáhaldsdótið hans.
Hægt er að hafa samband við
stjórn Leitarhunda hér eða hringja beint í
hópstjórana til að fá nánari upplýsingar eða
tilkynna þátttöku á æfingu.
Vonandi sjáum við ykkur sem allra fyrst á æfingu.
Kveðja fyrir hönd stjórnar,
Kristín formaður s. 8946050
Umsóknir sem senda skal til stjórnar fyrir aðalfund í mars:Hér að neðan eru tvö skjöl frá Fræðslunefnd : umsókn á námskeið og umsókn í Leitarhunda.
Skjölin eru sérsniðin til að fólk geti sótt þau og fyllt þau út í tölvunni (svo þau séu vel læsileg), prentað þau út, skrifað undir og fengið undirskrift formanns björgunarsveitar og síðan póstlagt þau til ritara L.S.L.
Skjölin eru því varðveitt þannig að ekki er hægt að breyta þeim aðeins fylla inn í gráa reiti (grái liturinn sést ekki þegar prentað er út). Þið þurfið aðeins að hægrismella á tenglana hér að neðan og velja "Save target as" og vista skjalið á heimavélina.
Umsókn í Leitarhunda SL
Umsókn á námskeið Leitarhunda SL