Helgina 21. – 23. ágúst s.l. var önnur úttekt Leitarhunda þetta sumarið.
Fór úttektin fram á Neskaupstað þar sem Gerpismenn tóku á móti okkur með glæsibrag. Æft var alla dagana þrjá og glæsileg útkallsæfing var sett upp á laugardagskvöldið. Þar var öllu kostað til þar sem lögreglan, svæðisstjórn, alheimsvinir, unglingadeild og björgunarsveitarmenn/konur frá Gerpi tóku þátt.
Leitarhundar vilja koma á framfæri þökkum til allra sem tóku þátt og gerðu þessa helgi að veruleika. Friðrik og fjölskylda fá sérstakar þakkir fyrir lánið á ættaróðalinu og móðir Friðriks fær einnig sérstakar þakkir fyrir eldamennsku á föstudagskvöldið. „Týndir“ unglingar stóðu sig allir eins og hetjur og án þeirra hefði þetta ekki verið hægt.
Þau teymi sem hlutu gráðu eru:
A-teymi: ÚtkallsteymiTómas A. Einarsson og KrummiStefán K. Guðjónsson og Vaka
A-endurmat:
Valgeir Rúnarsson og Kútur
B-teymi: Vinnuteymi
Pétur B. Árnason og Simbi
C-teymi:
Grétar Laxdal og Greifi
Hinrik Jóhannsson og Trýna
Jón H. Elíasson og Skuggi
Nansý Guðmundsdóttir og Hilmir
Í heildina voru 15 teymi sem bæði æfðu og tóku próf. Leiðbeinendur og dómarar á námskeiðinu voru Valgeir Rúnarsson, Steinar Gunnarsson, Haraldur Ingólfsson og Stefán K. Guðjónsson. Leiðbeinandanemi var Sara Ómarsdóttir.
Fyrir hönd stjórnar þakka ég kærlega fyrir frábært námskeið sem var í alla staði óaðfinnanlegt (ef ekki er tekið með að undirrituð fékk ekki kjöt á laugardaginn;)
Sjáumst hress í október.Sara Ómarsdóttir
Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...
Það hefur aldrei hvarflað að mér að skrifa minningargreinar um þau dýr sem ég hef misst um dagana en þau eru orðin ansi mörg, enda hef ég átt skepnur frá því að ég man eftir mér. Þó get ekki ekki hj...
Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com