A A A

Samsuð N-hóps

19.8.2009
í gær, þriðjudaginn 18. ágúst var haldin æfing hjá N-hóp á Ólafsfirði.

Mættu 6 teymi og einn nýliði. Sara og Pétur frá Akureyri, Tommi og Grétar frá Ólafsfirði, Halli leiðbeinandi og Jón frá Sauðárkróki og nýliðinn Fjóla frá Ólafsfirði. Hún mætti með 5 mánaða gamlan schieffer hvolp, Dexter. Bjóðum við þau hjartanlega velkomin í hópinn.

Allir tóku einhverskonar æfingar, allt frá leik upp í svæði. Gegnu flestir heilir frá æfingunum þrátt fyrir nokkrar hnoðæfingar á fígúröntum. Eftir hverja æfingu voru svo tekin hamborgarahlaup sem byggðust upp á því að sá sem kæmi fyrstur í bílinn úr svæði fengi hamborgara að launum. Sáust þarna hlaup sem hefðu vel haldið í Jamaíka hlaupara;)

Eftir æfinguna var svo farið niður í björgunarsveitarhús á Ólafsfirði þar sem nokkrir Hallar voru grillaðir (hamborgarar). Ein 20 stk!

Ég vil þakka kærlega fyrir skemmtilegt kvöld og vona að þetta verði gert að föstum lið.

f.h. N-hóps
Sara

p.s. Ætlunin er að fara í samfloti á úttektina næstu helgi og ætlar hann Pétur að taka á móti okkur í mat áður en lagt er af stað. Sjáumst hress og kát á fimmtudaginn.

Fyrir þá sem ekki koma á úttekina verður næsta æfing hja N-hóp haldin mánudaginn 31.ágúst á Akureyri kl. 19:00. Það verður haldin töflufundur þar sem sett verða upp svæði og leitarmöguleikar. Allir fá að spreyta sig.

Útkall 18. júní 2011

Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...

fleiri útköll
Leit með hundum

Allir hundar geta leitað með nefinu, en þeir eru þó mis hæfir til þess. Þættir eins og til að mynda skapgerðareiginleikar hundsins, skipta miklu máli um það hversu hæfur leitarhundur hann getur orðið....

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com