A A A

Úttekt í Eyjafirði

26.7.2009
Fyrsta úttektar- og æfingarhelgi fyrir víðavang var haldin um helgina, 23.-26. júlí 2009, í Eyjafirði.

Til þátttöku mættu 13 teymi og 4 aðstoðarmenn. Æft var í þrjá daga. Gist var í skátaskálanum við Vaðlaheiði í Eyjafirði, þökkum við kærlega fyrir afnot af húsinu. Leiðbeinendur og dómarar voru : Valli, Stefán, Halli og Kristín.

Nokkur teymi voru tekin í próf og var árangurinn þessi :
Halli og Baltó A-endurmat (Skagafirði)
Hákon og Djákni A-endurmat (Akureyri)
Kristín og Kútur A-endurmat (Hafnarfirði)
Friðrik og Hneta B-gráða (Neskaupstað)
Teddi og Hugi B-gráða (Reykjavík)
Ási og Mýra C-gráða (Reykjavík)

Óskum við þessum teymum innilega til hamingju með góðan árangur. Einkum sendum við Friðrik og Björgunarsveitinni Gerpi og Tedda og Björgunarsveitinni Ársæl til hamingju með nýju útkallshundana í víðavang.

Aðstoðarmennirnir Aggi, Íris og Gunni fá góðar þakkir fyrir að liggja úti í fleiri klukkustundir alla dagana. Án svona fólks gætum við ekki þjálfað upp Leitarhunda. C-hundamenn sem mættu og gáfu meirihluta helgarinnar í að liggja úti fyrir aðra hunda fá líka þakkir og hrós fyrir aðstoðina.

Myndir eru væntanlegar á vefinn fljótlega.

Næsta úttekt í víðavang verður á austfjörðum dagana 21.-23. ágúst 2009. Nánar auglýst síðar.
Útkall 18. júní 2011

Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...

fleiri útköll
Foringjaæfingar - Grein e. ...

Formáli :
Grein þessi fjallar um foringjaæfingar sem allir hundaeigendur ættu að temja sér að gera með hundana sína. Lögð var áhersla á æfingar sem henta vel hundaeigendum sem stefna að því að þjálf...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com