A A A

Útkallsæfing 19. júlí

19.7.2009
Stefán Karl   Haldin var æfing fyrir útkallshunda og verðandi útkallshunda í dag, sunnudaginn 19. júlí, í Bláfjöllum. Æfingin var skipulögð og boðuð með stuttum fyrirvara og var því fámennt en góðmennt á æfingunni. Veður var gott í Bláfjöllum skýjað, létt gola og mjög heitt.

Fengnir voru tveir aðstoðarmenn frá Björgunarsveit Hafnarfjarðar til að fela sig þeir Biggi og Gummi, auk þess sem Doddi c-hundamaður sýndi felutakta með stæl. Mættu þeir snemma eða um kl. 10 í Bláfjöllum og lögðu sig út fyrir hundamenn skv. óskum Valla sem stýrði uppsetningu æfingarinnar.

Leit hófst rúmlega 11 og fór einn hundur í einu í svæðið, Kútur og Kristín, Svunki og Stebbi, Hugi og Teddi. Leit A hundamanna tók um 1 og 1/2 klst en svæðið var síðan minnkað fyrir verðandi B hundinn Huga sem tók klukkustundar langa leit.    
 
Stefán Karl að lokinni leit
Útkall 18. júní 2011

Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...

fleiri útköll
Hvernig kemur atferlisfræði...

Við upphaf tamningar er nauðsynlegt að tamningarmaðurinn (þjálfarinn) hafi skilning á eðli og atferli skepnunnar sem verið er að fást við.

Atferli: Atferlisstefnan er einn angi af sálfræðinni og þei...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com