A A A

Útkall 5. des - leit haldið áfram

9.12.2008
Leit var haldið áfram á svæði 3 föstudaginn 5. desember að rjúpnaskyttu er týndist við veiðar helgina á undan.  Kristín fór með Kút ásamt bílstjóra (Valla) og aðstoðarmanni (Andra ferðamanni :-) ) frá björgunarsveit Hafnarfjarðar og Hákon og Djákni komu frá Súlum á Akureyri ásamt aðstoðarmanni (Þórhalli) og gönguhópum. Bæði teymin fóru í að leita svæði sem þótti líklegt út frá vísbendingum sporhunds Hafnarfjarðarsveitar og víðavangsleitarhunda er leituðu aðfaranótt sunnudagsins. Leitað var eitt stórt svæði frá um kl. 11 til kl. 18. Leit bar ekki árangur.

Kær kveðja með þökkum um samstarfið sendist til félaga okkar í báðum sveitum sem og félaga okkar í Björgunarsveit Kyndils Mosfellsbæ fyrir skutlið á fjórhjólunum.

Frétt af síðu Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Útkall 18. júní 2011

Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...

fleiri útköll
Hvernig kemur atferlisfræði...

Við upphaf tamningar er nauðsynlegt að tamningarmaðurinn (þjálfarinn) hafi skilning á eðli og atferli skepnunnar sem verið er að fást við.

Atferli: Atferlisstefnan er einn angi af sálfræðinni og þei...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com