A A A

Útkall 29. nóvember

1.12.2008
Laugardaginn 29. nóvember kl. 15:36 barst formanni beiðni um víðavangsleitarhunda á svæði 3. Leit væri að hefjast að rjúpnaskyttu sem hefði ekki skilað sér á réttum tíma í bíl samferðamanna. Frá Leitarhundum fóru Kristín með Kút, Valli sem bílstjóri fyrir Björgunarsveit Hafnarfjarðar og Teddi sem aðstoðarmaður Kristínar.

Leit hófst milli kl. 18-19 í miklu roki og svakalegum kulda. Teymi frá BHSÍ og sporhundur Björgunarsveitar Hafnarfjarðar mættu á sama tíma og skipulögðu öll hundateymin sig saman til leitar út frá upplýsingum frá vitnum og lögreglu. Leitað var fram á nótt ásamt öðrum björgunarsveitum. Kristín og hennar hópur fóru til hvíldar um kl. 3:30.

Á sunnudeginum, 30. nóvember, fékk teymið úthlutað verkefni um hádegisbil. Tveir aðstoðarmenn, Einar og Lilja, voru fengnir frá Björgunarsveitinni Sigurgeir og hófst löng ganga (um 3 km) á svæðið um kl. 13:30. Björgunarsveitin Kyndill og Kjölur sendu síðan fjórhjól til að ferja teymin inn á svæðið. Þökkum við þeim kærlega fyrir samstarfið. Um stórt svæði var að ræða og ákvað svæðisstjórn að senda fleiri hunda inn á svæðið. Hörður frá BHSÍ kom með fjórhjólunum niður á svæðið og leitaði samsíða Kristínu. Síðar voru sendir tveir hundar í viðbót, Anna og Valur jafnframt frá BHSÍ, á móti þeim. Leit á svæðinu lauk um kl. 20.

Eftir að hafa gefið svæðisstjórn ítarlega skýrslu um verkefni hundateymanna var haldið til Reykjavíkur til hvíldar. Ekki fóru hundar frá Leitarhundum til leitar á mánudeginum.

Maðurinn er ófundinn þegar þessi frétt er skrifuð.
Útkall 18. júní 2011

Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...

fleiri útköll
Fyrstu þriggja daga úttekt ...

Um helgina, 17.-19. október 2003, var haldin 3 daga sumarúttekt og námskeið í Hveragerði . Þáttakendur voru 17 manns; 12 fóru í úttekt og 3 hundateymi voru á byrjendanámskeiði. Leiðbeinendur voru þrír...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com