Útkall 11. ágúst 2008
12.8.2008
Útkall barst undir hádegi í gær, 11. ágúst, leitað var að týndum einstakling við Glerá á Akureyri. Björgunarsveitin Súlur fór á vettvang með björgunarmenn og 2 leitarhunda, Zero og Djákna. Er leitarteymi voru að leggja af stað niður gilið fann lögregla viðkomandi látinn.