A A A

Útkall 19. ágúst 2008

20.8.2008
Kallað var til leitar í Esjunni í gærkvöldi. Útkall barst rétt fyrir kl. 20. Leitað var að manni sem villst hafði uppi á Esjunni í þoku.
 
3 hundateymi frá Leitarhundum, Kristín, Áslaug og Sara, fóru til leitar ásamt bílstjóranum Valla og aðstoðarmanninum Tedda.
 
Hundarnir voru ýmist ferjaðir með jeppum eða fjórhjólum áleiðis upp Esjuna. Teymin gengu síðan upp Gunnlaugsskarð. Þegar fyrstu teymin voru að verða komin upp skarðið kom þyrlan til leitar og staðsetti manninn innan skamms tíma. Teymin sneru við um kl. hálftólf þegar staðfest var að björgunarmenn væru komnir til hins týnda. Útkallinu lauk þegar teymin voru komin niður og búin að skrá sig af svæði um kl. 00:30.
 
Gott samstarf var við Björgunarsveitina Kyndil og Björgunarsveit Hafnarfjarðar sem ferjuðu hundateymin á fjórhjólunum upp að Gunnlaugsskarði.
Útkall 18. júní 2011

Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...

fleiri útköll
Hvernig kemur atferlisfræði...

Við upphaf tamningar er nauðsynlegt að tamningarmaðurinn (þjálfarinn) hafi skilning á eðli og atferli skepnunnar sem verið er að fást við.

Atferli: Atferlisstefnan er einn angi af sálfræðinni og þei...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com