Björgunarsveitir víðsvegar um landið voru kallaðar út aðfaranótt fimmtudags 10.

nóv. til leitar af sænskum ferðamanni á Fimmvörðuhálsi. Leitin breyttist síðar þar sem bíll mannsins fannst við Sólheimajökul. Alls voru tólf teymi frá Leitarhundum sem tóku þátt í leitinni dag og nótt við mjög erfiðar aðstæður. Ferðamaðurinn sem leitað var að fannst látinn á Sólheimajökli um hádegi, laugardaginn 12. nóv.
Vegna útkallsins var úttektarhelginni ásamt leiðbeinendanámskeiði sem átti að fara fram á Ólafsfiðri þessa helgi frestað, ekki komin önnur dagsetning.