A A A

Laugavegsganga HRFÍ

12.10.2011
Laugavegsganga HRFÍ verður laugardaginn 22. október nk kl 13:00. Gengið verður frá Hlemm, niður Laugaveginn og endar gangan í Hljómskálagarðinum þar sem Vinnuhundadeild og Íþróttadeild verða með skemmtiatriði. Skólahljómsveit Kópavogs mun slá taktinn og leiða gönguna eins og fyrri ár. Laugavegsgangan er kjörið tækifæri fyrir okkur, ábyrga hundeigendur, til að sýna almenningi hvað ábyrgt og gott hundahald gengur út á. Í ljósi neikvæðrar umræðu undanfarið í garð hundeigenda er um að gera að nýta þetta tækifæri til að koma því jákvæða á framfæri. Við hvetjum til þess að deildir hópi sig saman með sömu hundategundir. Ágúst Ágústsson mun útvega skilti með nöfnum tegundanna ef fólk vill. Vinsamlegast tilkynnið með tölvupósti á dranga@simnet.is ef þið viljið nota skiltin í síðasta lagi föstudaginn 21. október. Stöndum saman og komum ábyrgu hundahaldi á framfæri í eitt skipti fyrir öll! Kveðja,Viðburða- og skemmtinefnd HRFÍ.    
 
Útkall 18. júní 2011

Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...

fleiri útköll
Nokkrir punktar um víðavang...

Það eru nokkur atriði sem mig langar að nefna vegna víðavangsleitarþjálfunnar með hundum. Sérstaklega til að menn glöggvi sig á því hvað þarf til svo að sem bestur árangur náist með hvern og einn hun...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com