Jæja gott fólk, nú er komið að því! Sumarúttekt Leitarhunda verður haldin í Bláfjöllum í Reykjavík dagana 20, 21 og 22 ágúst 2010
SV-hópur sér um skipulagningu þetta árið og hafa staðið í ströngu við að útvega kost og fígúranta.
Gist verður í Lækjarbotnum sem er fallegur skátaskáli í fallegri laut við Selfjall eilítið vestar en Sandskeið. 64°4,6740'N 21°39,4692'W. Þar eru kojur og hver og einn þarf að koma með sæng / svefnpoka og nátthúfu. Ágætur matsalur er þar og við munum grilla saman í boði valinkunnra fyrirtækja hér í bæ.
Tveir erlendir dómarar munu vera okkur innan handa og dæma framistöðu teyma.
Fyrirhuguð er hópmyndataka á föstudeginum og því er mikilvægt að við verðum í fatnaði björgunarsveita okkar. Þeir sem eiga fána frá sinni sveit, endilega takið þá með.
Til minnis: Hundur, taumur, hundadót, númer 2 pokar, Belcando matur, Búr. A llir sem eiga Belcando húfu eða fatnað koma með það með sér. Hundar eru ekki leyfðir inni.
Helstu upplýsingar:
Gisting: Lækjarbotnar 64°4,6740'N 21°39,4692'W
Úttektir: Bláfjöll
Dagskrá:
Fimmtudagur
Mætting í hús og fólk kemur sér fyrir
Föstudagur
08:30 Morgunmatur
09:30 Dómarar og fígúrantar fara á svæði
10:00 Úttektir byrja
18:15 Myndataka
19:00 Kvöldmatur
20:00 Fyrirlestur Dýralæknir / Hundaatferlisfræðingur
Laugardagur
08:30 Morgunmatur
09:30 Dómarar og fígúrantar fara á svæði
10:00 Úttektir byrja
19:00 Kvöldmatur
Sunnudagur
08:30 Morgunmatur
09:30 Dómarar og fígúrantar fara á svæði
10:00 Úttektir byrja
17:00 Námskeiðsslit og afhending viðurkenninga í sal BJSV kyndills í Mosó.
Allar nánari upplýsingar hjá Tedda námskeiðsstjóra í síma : 898 3998
ATH. ÞEIR SEM EKKI ERU BÚNIR AÐ SKRÁ SIG VINSAMLEGAST GERIÐ ÞAÐ HÉR NEÐST Á SÍÐUNNI OG SENDIÐ Á leitarhundar (at) leitarhundar.is
Sjáumst kát og hress
Kveðja
Sérfræðingarnir að Sunnan