Úttektar- og æfingarhelgi á Vestmannsvatni
22.6.2010
Núna um helgina stóðu Leitarhundar fyrir úttektar- og æfingarhelgi á Vestmannsvatni fyrir norðan.
Um 12 teymi mættu á svæðið og tóku þátt ásamt fjölskyldum.
Veðrið lék við hópinn allan tímann og höfðu menn ekki undan við að bera á sig sólarvörnina með misjöfnum árangri.
Eitt teymi var skráð í próf og stóðst úttekt, þeir Theodór og Hugi frá bjsv. Ársæl. Þeir stóðust A-próf. Óskum við þeim til hamingju með árangurinn og um leið óskum við Ársæli til hamingju með teymið.
Þeir eru nú með bæði A-próf í snjóflóðaleit og víðavangsleit.
Önnur teymi kepptust við að æfa sig undir leiðsögn þriggja leiðbeinenda og eins leiðbeinendanema.
Nokkrar fjölskyldur voru einnig á svæðinu og nýttu tíman til að sóla sig, fylgjast með hundunum vinna og baka ofan í sísvanga þáttakendur.
Fyrir hönd stjórnar og leiðbeinenda þakka ég kærlega fyrir frábæra helgi.
Sjáumst hress 20. ágúst n.k. á sunnanverður landinu.
- sú helgi verður með hefðbundu námskeiðissniði þar sem greitt er námskeiðisgjald. (matur, gisting og fyrirlestrar er innifalið) en frekari upplýsingar koma síðar.
Sara Ómarsdóttir, formaður.