Komiði sæl,
takk fyrir kvöldið.
Nokkrir punktar varðandi hlýðni kvöldsins;
- temjið ykkur eina skipun !
- verið skemmtileg þannig að þið séuð áhugaverðari en það sem dró athygli hundsins frá ykkur
- ef hann svarar ekki innkalli gangið í gagnstæða átt og kallið á hann ákveðið en skemmtilega - verðlaunið !!
- ignorið hegðun sem þið viljið ekki - verðlaunið hegðun sem þið viljið
- fáið fólk með ykkur t.d. ættingja, vini, gesti, leitarhundahópinn ef þið eruð að vinna í einhverju sérstöku sbr. að ókunnugir séu ekki að verðlauna hundinn ykkar fyrir hegðun sem þið viljið ekki
- hlýðni er vinnna vinna og aftur vinna. EF við erum samviskusöm og gerum það sem fyrir okkur er lagt þá skilar það árangri.
- Minni enn á að þetta á að sjálfsögðu alltaf að vera skemmtilegt - öðruvísi náum við ekki árangri.
Næsta æfing er eftir viku. Rústaæfing í Hafnarfirði kl. 18. Fyrsta rústaæfingin okkar.
Ef að Ási nær að gera tvö geltbox handa okkur þá ættum við að ná að hafa tvískipt æfingasvæði - sér í lagi ef að Valli verður kominn til landsins.Við Teddi reddum svæði. Við þurfum klárlega að vera betur klædd :-)
A og B hundar æfa rústir. C hundar æfa víðavang. Sporhundar æfa rústir eða spor eftir því sem þið viljið sbr. fyrri póst.
Heimaverkefnið er hlýðni og að umhverfisþjálfa hundana - láta þá príla. Stýra þeim í prílinu með ákveðni og láta þá æfa sig að gera rólega. Allir hundar eiga að kunna að ganga upp og niður tröppur - líka tröppur sem eru með opnum þrepum (sem þeir sjá á milli þrepa). Kostur ef þeir kunna að fara upp og niður stiga en það er vandasamt.
Gott er að temja sér að kenna hundinum að labba hægt / læðast á skipun svo að hægt sé að nota það í leitinni. Hundar eiga að fara varlega á rústasvæðum.
Minni enn og aftur á að ÖRYGGI er númer 1 2 og 3 í rústum bæði ykkar eigið og hundanna. Öryggið skal haft einnig í fyrrúmi þegar er umhverfisþjálfað.
Munið að kenna þeim umhverfisþjálfun af yfirvegun því að þeir mega ekki verða hræddir - við ætlum að koma í veg fyrir vandamál í framtíðinni með því að umhverfisþjálfa en ekki búa til vandamál.
Verið er að vinna í að koma okkur að í Agility í reiðhöllinni.
Nánar í tölvupósti.
Kveðja Kristín