Nú er svo komið að við þurfum að slípa til samstarf ykkar við hundana ykkar. Þið sem hafið fengið þetta verkefni úthlutað að loknu vetrarnámskeiði taki þetta sérstaklega til sín.
Planið er að ég setji á síðuna okkar ýmsa punkta um hlýðni, síðan verði sett upp æfingadagskrá fyrir hlýðniæfingar. Hver æfing er stutt og skemmtileg og ætti að passa inn í daglega rútínu okkar flestra. Æfingaplanið og greinarnar verða settar á aðalsíðuna. Ætlast er til að þið fylgið æfingaplaninu sem best eftir og með tímanum munum við sjá stíganda í þjálfun ykkar og hundsins - ekki bara í hlýðninni heldur einnig í samvinnunni. Nú þegar eru komnar inn fjórar greinar og eiga allir að lesa þær, einkum vil ég sjá að fólk komi sér upp æfingadagbók og að þið séuð meðvituð um að samstarf ykkar og hundsins sé ekki eingöngu styrkt á leitaræfingum. Kynnið ykkur greinarnar undir liðnum
fróðleikur.
Athugið að þó að ég verði tengiliður ykkar í þessum málum þá megið að sjálfsögðu leita til allra leiðbeinendanna.
Stýringin sem við viljum bæta er að hundurinn stýrist betur af þér og sé meira að vinna með þér en ekki einn og sjálfur. Hundurinn á ekki að komast í gegnum verkefnin með því að leysa þau sjálfur. Við viljum að hundurinn stýrist í svæðisvinnunni af þér svo þú vitir nákvæmlega hvar hann hefur farið yfir og hvar ekki - öðruvísi geturðu ekki skilað af þér með vissu fullleituðu svæði. Þetta næst einna helst með samvinnuverkefnum fyrir ykkur = verkefni sem þið leysið saman. Svo að úr verði teymi.
Æfingar á næstunni (amk hjá SV-hópur ) eru rústir. Það er ágætt fyrir ykkur því þar græðir hundurinn ekkert á að RANGE-a og nálægðin er meiri við ykkur. Við munum stýra hundunum í gegnum svæðin á svipaða máta og í snjóflóðunum.
Þið sem eruð að æfa spor :
einbeitið ykkur á æfingum með okkur að rústum í apríl og maí. Takið sporin hins vegar sjálf heima fyrir samhliða rústunum þannig að þið séuð komin á gott ról í júní og getið æft ótrauð með okkur sporið út árið. Það gæti vel verið að við tökum rústir aftur í haust það kemur í ljós.
Í stuttu máli þá er þetta framundan hjá ykkur :
• Besta leiðin til þess að ná árangri í samvinnu eru samvinnuverkefni:
• gönguferðir með hann lausan þar sem þú kallar hann reglulega til þín og lætur hann hoppa upp á eitthvað, kallar hann til þín bara til að hrósa honum og gefa honum svo frjáls aftur,(eftir að hann er búinn að skíta)
• gönguferðir með hann lausan þar sem þú kastar fyrir hann dóti og lætur hann skila (eftir að hann er búinn að skíta)
• hlýðniæfingar þar sem þú lætur hann sitja og bíða í smástund (verðlaunar með nammi)
• hlýðniæfingar þar sem þú lætur hann gera eitthvað sniðugt til að fá frá þér matinn td gelta, banka með loppu í hendina
• sporaæfingar (þar leysið þið verkefnið saman)
• rústaæfingar (þá er hann að vinna nær þér heldur en í víðavanginum og kemst ekki sjálfur að hinum týnda) ATH þú átt að verðlauna hann en ekki hinn týndi mundu það með mér
• Víðavangsæfingar í þröngu rými sbr að leita á afmörkuðu svæði í kringum alls konar drasl þar sem hann kemst ekki hratt yfir - fígúrantinn falinn þar sem hann nær ekki til hans td. á vörubílspalli.(líklega verða grunnæfingar okkar að rústum ca. svona) Þannig þarf hann á þér (!) að halda til að hjálpa sér hann getur ekki klárað dæmið alveg einn og óstuddur.
ATHUGIÐ að viðra þá ekki þannig að þið séuð stöðugt að kalla í hundana ykkar !!!!! Við ætlum EKKI að taka úr þeim sjálfstæði og við ætlum ekki að gera þá ónæma fyrir okkur með því að vera stöðugt að kalla í þá og tuða í þeim !!!! Við ætlum að njóta þess að vinna með þeim í ýmsum smáum og stórum verkefnum og mynda við þá TENGSL ! Þessi tengsl eru sameiginlegt tungumál og skilningur á að þið hafið þörf og gagn og gaman hvort fyrir annað.
Þess vegna ætlum við að byggja upp skipulag eða æfingakerfi þannig að vinna okkar sé markviss.
Kristín Sigmarsdóttir