Vetrarnámskeið 2010 er nú lokið.
Eins og fram hefur komið þá var það haldið á Neskaupstað þennan veturinn eða 740 Paradís eins og heimamenn segja.
19 teymi voru við æfingar og um 20 manns komu með einum eða öðrum hætti að námskeiðinu.
2 erlendir dómarar komu og aðstoðuðu leiðbeinendur okkar við úttektina. Það voru þeir James Gall og John Bell. Fimm Finnar komu og fylgdust með, unglingadeildir frá Neskaupstað og nærliggjandi fjörðum komu og veittu okkur ómælda aðstoð við að fara ofan í holur fyrir okkur, skíðasvæðið í Oddsskarði sá um að útbúa snjóflóðasvæðin fyrir okkur, fjölskyldan hans Friðriks lánaði okkur Seldal ásamt því að móðir hans eldaði ofan í hópinn. Mun fleiri tóku þátt í þessu með okkur og viljum við þakka þeim öllum kærlega fyrir aðstoðina.
Þau teymi sem hlutu A- og B- gráður voru eftirtalin:
A-endurmat:
Hákon Viðarsson og Djákni – Gerpir
Haraldur Ingólfsson og Baltó – Skagfirðingasveit
A – próf:
Tómas Einarsson og Krummi – Tindur
Theodór Bjarnason og Hugi – Ársæll
Pétur Bergmann og Simbi – Súlur
Stefán K. Guðjónsson og Svunki – Gerpir
B-próf:
Grétar Laxdal og Greifi – Tindur
Jón H. Elíasson og Skuggi – Skagfirðingasveit
Reynhildur Karlsdóttir og Askur – Kjalanes
Friðrik Vigfússon og Hneta – Gerpir
Óskum við þeim öllum til hamingju með árangurinn ásamt þeim sem tóku C-próf.
Aðalfundur Leitarhunda var svo haldin á laugardeginum. Ný stjórn leit dagsins ljós:
Sara Ómarsdóttir, formaður – Súlur
Tómas Einarsson, varaformaður – Tindur
Ingvar S. Árnason, gjaldkeri – Gerpir
Pétur Bergmann, meðstjórnandi – Súlur
Theodór Bjarnason, meðstjórnandi – Áræll
Stjórn Leitahunda hvetur alla félaga til að nýta það sem eftir er af snjónum til að æfa snjóflóðaleit áður en við förum að hlaupa upp um fjöll og firnindi við æfingar.
f.h. stjórnar
Sara Ómarsdóttir