A A A

Feludýr óskast

9.2.2010

Leitarhundar leita að fólki sem er tilbúið að koma og aðstoða við þjálfun hundanna. Aðstoðin felst í því að fela sig fyrir hundunum á æfingum eftir beiðnum leiðbeinenda.

Allir sem aðstoðað geta eru velþegnir og velkomnir. Skráning á boðunarlistann fyrir feluldýr sem vilja koma á æfingu með okkur.
Vinsamlega sendið upplýsingar á tölvupósti : leitarhundar@leitarhundar.is

Með von um góð viðbrögð.
Kristín Sigmarsdóttir, formaður.



Nánari upplýsingar :

Sæl veriði - nokkrar nánari upplýsingar um hvað það er að vera feludýr / fígúrant / "hinn týndi"

Við erum að leita að fólki sem er tilbúið til að koma á æfingar hjá okkur og leika "hinn týnda".

Það sem fólk þarf að gera fyrir okkur er að "týnast" á æfingarsvæðinu og hundarnir spreyta sig svo á því að finna viðkomandi.
Þetta er allt gert undir handleiðslu leiðbeinenda okkar og þeir segja ykkur alltaf til um hvert þið eigið að fara og hvað þið eigið að gera. Stundum þarf að hlaupa út nokkra metra á meðan önnur skipti ertu labba upp í hlíð eða út í móa, fer allt eftir eðli æfingarinnar hverju sinni og reynslu hundsins.

Það væri náttúrulega langsniðugast að kíkja á eina æfingu og hitta okkur og sjá hvað við erum að gera.

Ef þetta er eitthvað sem heillar endilega sendið nafn, símanúmer og heimilisfang á tölvupóstinn leitarhundar@leitarhundar.is og þið verðið skráð á boðunarlistann hjá okkur. Ef fólk vantar far á æfingarnar þá reynum við að koma því í kring.

Æfingar fara fram víða t.d. í og við höfuðborgina, á norðurlandi t.d. Akureyri og víðar, á austurlandi einkum Neskaupstað og á Hólmavík, Grundarfirði og á Ísafirði.

Fyrir hönd stjórnar,
Kristín Sigmarsdóttir,
Formaður Leitarhunda S.L.

Útkall 18. júní 2011

Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...

fleiri útköll
Nokkrir punktar um víðavang...

Það eru nokkur atriði sem mig langar að nefna vegna víðavangsleitarþjálfunnar með hundum. Sérstaklega til að menn glöggvi sig á því hvað þarf til svo að sem bestur árangur náist með hvern og einn hun...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com