A A A

Æfing í dag - frh á morgun

6.2.2010
Vorum að æfa í Bláfjöllum í dag veðrið var mjög gott en ofboðslega kalt. Mæting var með besta móti, 14 hundar með 11 eigendur. Æfingin stóð frá kl. 10-18. Við höldum áfram þar sem frá var horfið á morgun sunnudag kl. 10 og ljúkum æfingum um kl. 14. Mæting á sama stað (neðst á Bláfjallaafleggjaranum er bílastæði við Bláfjallaskiltið - rétt neðan við / á móts við vitann)

Við fengum nokkra glænýja á æfingu til okkar : Þórður kom með 8 mánaða Beagle hund sem er afar leikglaður og áhugasamur um fólk. Ásgerður kom með afar vinalegan blending sem hefur aðeins prófað að spora og ætla þau að koma og spora með okkur og læra að leika með dót. Haukur sonur hennar kom með henni og vonumst við til að sjá hann líka með okkur áfram. Dagbjört kom með tvo fallega Border Collie hunda og sýndi okkur sporaþjálfun sem hún er búin að sinna lengi, hún er komin til að þjálfa bæði víðavang og spor með okkur. Sólveig kom með schaeffer blendingstík sem stóð sig mjög vel í vinnuhundaprófi og stuttum úthlaupum, eigum eflaust eftir að fá þær á fleiri æfingar.

Skemmtileg æfing og skemmtilegt fólk.

Kv Kristín
Útkall 18. júní 2011

Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...

fleiri útköll
Minning um Elvis:


Það hefur aldrei hvarflað að mér að skrifa minningargreinar um þau dýr sem ég hef misst um dagana en þau eru orðin ansi mörg, enda hef ég átt skepnur frá því að ég man eftir mér. Þó get ekki ekki hj...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com