A A A

SV-hópur undirbýr snjóflóðaleit

28.1.2010
SV-hópurinn er búinn að hittast þrisvar sinnum með stuttu millibili. Þó enginn snjór sé á sv-horninu undirbýr hópurinn sig andlega undir snjóflóðaleitina. :- ) og hundarnir æfa víðavang meðan betra býðst ekki.

Á miðvikudagskvöld fyrir viku síðan var fundur í Sjóbúð Ársæls þar sem rifjuð voru upp vinnubrögð í snjóflóðaleitinni.
Á sunnudagsmorgun kl. 10 var víðavangs-og sporaæfing undir Úlfarsfellinu sem gekk vel þrátt fyrir slagveðursrigningu. 
Hópurinn hittist síðan aftur í gærkvöldi (miðvikudag) og horfði saman á 2 video með hundum í snjóflóðaleit og tók 2 töfluæfingar.

Næsti hittingur er væntanlega n.k. miðvikudagskvöld. Nánar þegar nær dregur.
Útkall 18. júlí 2009

Um klukkan eitt í nótt voru björgunarsveitir frá Hellu, Hvolsvelli, Vík í Mýrdal og Kirkjubæjarklaustir kallaðar út til að leita að sex manna gönguhóp sem hafði ekki skilað sér í næturstað. Einnig vor...

fleiri útköll
Enginn ræður sínum næturstað !

Stundum getur "stutt ferðalag" orðið alllangt hér á landi, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Ófærð og illviðri tefja og gera mönnum oft lífið leitt. Þannig var það allavega hjá mér eftir annars mjög án...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com