A A A

Snjóflóðanámskeið 2010

15.1.2010
Heilir og sælir félagar,

S.l. helgi hittust allir leiðbenendur okkar og fóru yfir ýmis mál, lærðu nýja hluti og deildu þekkingu. Meðal annars var farið yfir komandi vetrarnámskeið og lokaákvarðanir teknar. Svona standa málin:

Námskeiðið verður haldið á Neskaupstað.
Það hefst laugardagsmorguninn 20. mars kl. 8:00 og lýkur á þriðjudagskvöldið 23. mars kl. 20:00.
(með þessu er mönnum gert kleyft að leggja af stað e. vinnu á föstudag en ath með brottför á þriðjudag að námskeiði lýkur EKKI fyrr en kl. 20:00 svo menn geta ekki farið fyrr. Lýkt og með önnur námskeið hjá Landsbjörgu þarf að sitja allt námskeiðið ef menn ætla að þreyta próf og klára sína gráðu.)

Dagskráin er á þessa leið:
Laugardagur
8:00 - 17:00 (tímasetning getur lengst ef svo stendur á) Ræs, morgunmatur og svæði gerð klár, Æfingar.
farið af svæðum, sund, matur, leiðbeinendafundur
20:00 Aðalfundur Leitarhunda, dagskrá samkv. lögum

Sunnudagur
8:00 - 17:00 (tímasetning getur lengst ef svo stendur á) Æfingar, próf
* Svæðistjórn og stjórn bj.sv. á svæðinu er boðið að koma og fylgjast með æfingum á sunnudag.
farið af svæðum, sund, matur, leiðbeinendafundur
20:00 Fyrirlestur um "clicker" þjálfun ásamt hópefli. Umsj. Sara Ómars

Mánudagur
8:00 - 17:00 (tímasetning getur lengst ef svo stendur á)
farið af svæðum, sund, matur, leiðbeinendafundur
20:00 Fyrirlestur, verkefnavinna eða annað.Smá tala og myndasýning frá ferð leiðbeinenda til Finnlands í október Umsj. Stefán Karl

Þriðjudagur
8:00 - 17:00 (tímasetning getur lengst ef svo stendur á) Æfingar, próf
farið af svæðum, tiltekt, leiðbeinendafundur, matur, slit


Skráning fer fram hér á námskeiðið (neðst) og senda skal umsóknina á leitarhundar@leitarhundar.is fyrir 4.mars n.k..

Vinsamlegast ath. að það er góður tími til skipulagningar fyrir ykkur svo ef menn hyggjast fljúga er góður möguleiki á ódýru flugfari austur.
Þeir sem gera það þurfa þó sjálfir að sjá sér fyrir fari áfram á Neskaupstað og þurfa líka að gera ráð fyrir því að koma sér í og úr svæði.

Allir hundar skulu geymdir í búri í bílum (nema menn séu á einkabílum þá ráða þeir því sjálfir) svo nauðsynlegt er að hafa búrið með:)

Settar verða betri upplýsingar hér inn þegar nær dregur en ef það eru einhverjar spurningar þá bara endilega hafið samband.

f.h. stjórnar
Sara Ómars
Ritari Leitarhunda
leitarhundar@leitarhundar.is
Útkall 10.júní 2010

Útkall á svæði 16. Kirkjubæjarklaustur.
Leit að tæplega tvítugum dreng sem hljóp út úr gleðskap aðfaranótt fimmtudags og hafði ekki skilað sér aftur.
Hundar settir í viðbragðstöðu um kl. 7 og svo send...

fleiri útköll
Enginn ræður sínum næturstað !

Stundum getur "stutt ferðalag" orðið alllangt hér á landi, sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Ófærð og illviðri tefja og gera mönnum oft lífið leitt. Þannig var það allavega hjá mér eftir annars mjög án...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com