A A A

Fundur og töfluæfing í snjóflóðaleit

15.1.2010
Hópurinn á höfuðborgarsvæðinu heldur sinn fyrsta fund eftir desember frí. Fundur og töfluæfing í snjóflóðaleit - undirbúningur fyrir snjóflóðaæfingar vetrarins miðvikudaginn 20. janúar 2010 kl. 20:00. Allir áhugasamir um snjóflóðaleit með hundum velkomnir. Fínt að hafa þetta sem sín fyrstu kynni af þjálfun leitarhunda.

Áætlað að kynningin sé um 2 klst. Kynninguna heldur Kristín leiðbeinandi með aðstoð frá Valla og Tedda. Kynningin fer annað hvort fram í bjösv. Hafnarfjarðar eða Ársæli, nánar auglýst síðar. Farið verður í snjóflóð (eðli, upptök og helstu hættur), almennt um leit á snjóflóðasvæði, , svæðisvinnu í snjóflóði með leitarhund. Auk þess uppsetningu æfinga, æfingaplan vetrarins og margt margt fleira. Mikilvægt að sem flestir mæti.

Æfingar hefjast svo strax helgina á eftir með ferð á Ólafsfjörð þar sem æfð verður snjóflóðaleit bæði laugardag og sunnudag. Æfingunni stýra Halli leiðbeinandi, Sara leiðb.nemi og Tommi. Allir hvattir til að fara þangað þar sem engin aðstaða er til æfinga í nágrenni við höfuðborgarsvæðið.
Útkall 18. júlí 2009

Um klukkan eitt í nótt voru björgunarsveitir frá Hellu, Hvolsvelli, Vík í Mýrdal og Kirkjubæjarklaustir kallaðar út til að leita að sex manna gönguhóp sem hafði ekki skilað sér í næturstað. Einnig vor...

fleiri útköll
Nokkrir punktar um víðavang...

Það eru nokkur atriði sem mig langar að nefna vegna víðavangsleitarþjálfunnar með hundum. Sérstaklega til að menn glöggvi sig á því hvað þarf til svo að sem bestur árangur náist með hvern og einn hun...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com