A A A

Snjóflóðafundur

6.1.2010
Sælir félagar og gleðilegt ár.

Nú er að hefjast nýtt þjálfunar-tímabil hjá okkur sem störfum með leitarhunda, æfing í snjóflóðaleit.
Við hér á Norðurlandi ætlum því að hefja tímabilið með töflufundi um snjóflóðaleit.

Fundurinn verður haldin á Akureyri n.k. fimmtudag kl. 19:00 í húsi Súlna, Hjalteyrargötu 12.

Ætlunin er að fara í flest það sem snýr að snjóflóðaleit með hundum.

Við munum ræða tegundir snjóflóða, hvað skal varast á snjóflóðasvæðum, hvernig leitarsvæði eru skipulögð, hvernig leit með hundi er skipulögð og margt fleira.

Við mælum með því að þeir sem hafa hug á að æfa með okkur í vetur mæti og kynni sér þessa tegund af leit. Gamlir félagar eru líka að sjálfsögðu velkomnir.

f.h. N-hóps Leitarhunda
Sara Ómarsdóttir
sara@leitarhundar.is
Útkall 18. júní 2011

Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...

fleiri útköll
Nokkrir punktar um víðavang...

Það eru nokkur atriði sem mig langar að nefna vegna víðavangsleitarþjálfunnar með hundum. Sérstaklega til að menn glöggvi sig á því hvað þarf til svo að sem bestur árangur náist með hvern og einn hun...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com