A A A

Ný afstaðin helgaræfingí Aðaldal

30.11.2009


Norðurhópur stóð fyrir helgaræfingu núna um helgina. Boðið var til veislu á Vestmannsvatni í sveitinni hans Péturs Bergmanns og var æfti laugardag og fyrri part sunnudags.
8 teymi mættu til leiks. Komu þau frá Hólmavík, Sauðárkróki, Akureyri, Ólafsfirði og Neskaupstað. Halli og Stebbi voru leiðbeinendur og Sara og Úlfar voru leiðbeinendanemar.

Við fengum alveg æðislegt veður, á laugardag voru -11° en aðeins hlýrra á sunnudag, stillt og gott veður.

Það var mikið hlegið, grilluðum alveg dýrlegt lambakjöt um kvöldið og áttum góða stund saman. Hundar, æfingar og útkallsmál voru svo rædd um kvöldið yfir heitu kakói og piparkökum.

Það komu þrír fígúrantar frá Sauðárkróki, þeir Ingvi, Haffi og Alex og viljum við senda þeim alveg endalausar þakklætiskveðjur. Vonum að þeir séu búnir að jafna sig á rúsínufingrunum en þeim tókst að vera rúma 4 tíma í heitapottinu á laugardagskvöldinu!

Ákveðið var að sameiginlegar æfingar N- og A-hóps verða haldnar eina helgi í jan og eina í feb. Annarsvegar á Ólafsfirði og hinsvegar í Oddskarði. Þangað til dönsum við trylltan snjódans og vonum að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir.

Næsta æfing hjá N-hóp er eftir hálfan mánuð og verður á Ólafsfirði þar sem Grétar og Tommi ætla að bjóða til "rústar-leitar". Æft verður í gamalli vöruskemmu á þremur hæðum.

f.h. N-hóps þakka ég kærlega fyrir okkur.
Sjáumst hress og gleðilega aðventu
Útkall 10.júní 2010

Útkall á svæði 16. Kirkjubæjarklaustur.
Leit að tæplega tvítugum dreng sem hljóp út úr gleðskap aðfaranótt fimmtudags og hafði ekki skilað sér aftur.
Hundar settir í viðbragðstöðu um kl. 7 og svo send...

fleiri útköll
Hlýðni - 2. hluti - Tengsla...

Hlýðni - 2. hluti - Tengslaæfingar
leiðbeiningar fyrir þá sem vilja bæta samvinnu sína og hundsins og fá hlýðnari hund fyrir vikið
Grein eftir Kristínu Sigmarsdóttur leiðbeinanda Leitarhunda S.L...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com