A A A

Æfing hjá N-hópi s.l. sunnudag

18.11.2009
Við í N-hóp héldum víðavangsæfingu s.l. sunnudag, 15.nóv.

Valli leiðbeinandi hafði samband og bauð okkur aðstoð. Við þáðum hana og boðuðum út liðið.
6 teymi mættu og einn áhugasamur með 6 mánaða hvolp. Við vonum að við komum til með að sjá þá oftar og bjóðum þá velkomna. Grétar, Tommi, Jón, Hákon, Sara og Pétur voru þau sem mættu hress og kát.

Aðstæður voru bara ágætar, og svæðið fínt. Við skiptumst á að liggja úti en tveir ungir drengir frá Ólafsfirði hjálpuðu okkur einnig og þökkum við þeim kærlega fyrir hjálpina og vonum að jólaölið hafi hlýjað þeim aðeins.

Staðan á N-hóp er annars bara nokkuð góð, allir eru komnir vel á veg í þjálfun og erum við öll að læra hvort öðru.

Næsta æfing hjá okkur er eftir hálfan mánuð og vonumst við til að sjá sem flesta.


f.h. N-hóps
Sara Ómars
Útkall 18. júní 2011

Björgunarasveitir voru kallaðar út seinnipartinn til leitar að manni sem fór frá sumarhúsi sínu við Hekluhraun. Maðurinn fannst látinn &a...

fleiri útköll
Hlýðni - 1. hluti - Af hver...

Hlýðni - 1. hluti - Af hverju hlýðni
Grein eftir Kristínu Sigmarsdóttur leiðbeinanda Leitarhunda S.L.


Fyrsta sem við þurfum að athuga áður en við byrjum : "hvernig vill ég að hundurinn hagi sé...

meiri fróðleikur

Allur réttur áskilinn © Leitarhundar Slysavarnafélagsins Landsbjargar

Leitarhundar SL, Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, s: 894-6050 / leitarhundar@gmail.com