Norðurlandshópur stendur fyrir helgaræfingu 27. - 29. nóvember n.k.
Á staðnum verður leiðbeinandi, leiðbeinandanemi og hópstjóri Norðurlandshóps.
Æft verður frá kl. 8:00 laugardagsmorgun til kl. 12:00 á sunnudag.
Grillað verður saman um kvöldið, farið í pottinn og almennar vangaveltur um hundaþjálfun ræddar.
Þá verður töfluæfing og fyrirlestur um kvöldið sem Sara leiðbeinandanemi sér um ásamt Tómasi hópstjóra.
Veturinn er að skella á og er þetta kjörinn tími til að taka góða æfingu áður en áherslan verður færð yfir á vetrarleit.
Skilaboð frá Norðurhóp eru þessi:
Ætlar þú að láta helgaræfingu á Norðurlandi fram hjá þér fara?
Ætlaru að missa af góðri æfingu, krefjandi landslagi og góðu grilli?
Ert þú að geyma leitarhundinn allann daginn heima?
Hvenær tókstu langa æfingu síðast?
Skelltu þér á æfingu með skemmtilegu fólki í kristilegu umhverfi á Vestmannsvatni!
Skráning stendur yfir núna í síma 863-3119 (Tommi)
Það eru allir velkomnir, nýji, gamlir eða aðrir aðstandendur.
Það er stutt á Húsavík, leiktæki fyrir börnin og flott aðstaða til útivistar.
Svefnaðstaða og eldhús eru til fyrirmyndar og jafnast á við 3 stjörnu hótel.
Matur yfir helgina er á ábyrgð hvers og eins fyrir utan sameiginlegt grill.
Gistigjald er í lágmarki.
Ekki vera með samviskubit yfir æfingarleysi, gerðu eitthvað í málunum!
kv. Tómas Atli Einarsson og Sara Ómarsdóttir